1. |
Eitrun
04:42
|
|||
2. |
Vígspá
02:43
|
|||
Vígspá
Sú er ég ljáði eyra
Þjófsnaut úr mér skóp
Og laust eins og veira
Hún mun að lokum foldu fylla dreyra
Hljóðfrá
Hún fyllti fleira og fleira
Heimsmynd falla tók
Og hljóðmynd frá eyra
Og mun að lokum foldu fylla dreyra
Frostregn grjóthnullunga
Fellur milli altara
Akrar Járnlegsteina
Köldu anda víðóma
Himnar falla í jörð
og sótið fyllir rauða nótt
|
||||
3. |
Þula
03:33
|
|||
Ég myndi klóra út augun á mér
Frysta augasteininn
Sálarspeglana svo færa þér
Kyssa þig berdreyminn
Værir þú mín
Þú sjónvarpssnjóbylinn svæfir
Sendir dulúðugt augnaráð
Vökumartraðir kæfir
Með uppsminkaðri frostrbráð
Draugasögulíf drungans
Dofnar um leið og ég sé þig
Brosa í gegnum skjáinn
Í 14:2 mér við hlið
Ég myndi raka allt hárið af mér
Færa þér lokkana
Gæti ég fangað ilminn af þér
Og hætta svo að anda
Værir þú mín
|
||||
4. |
Cha Cha Cha
03:26
|
|||
Það leggur reyk yfir sviðna jörð
Þar sem vindurinn hvæsir á fjallaskörð
Við störum stutt yfir eldhafið
Þar sem brenna þau öll
Logarnir leika við rjáfrið
Þau falla í eilífian svefn
Laus undan ógn þeirra og fári
Við hverfum í næturregn
Við göngum brott
Leiðumst hönd í hönd
Þar sem land mætir hafi og bára strönd
Við leggjumst niður í græna laut
Og við eigumst á ný
|
||||
5. |
Sírena
04:11
|
|||
Lifir á lofti
Flösu og skorti
Hún stiklar milli öskubakkanna
Með slóttugleikan milli tannanna
Brosið er brotið
Fegurðinn rotin
En þó ná sírenusöngvarnir
Að vela og yfirtaka mig
Hún dregur hann blóðhlaupnum augunum á
Í fang sér og fanga hann nær
Því tómið sem hann treysti og trúði á
Er hvergi að finna í hans sál
|
||||
6. |
Út
04:27
|
|||
Viss um að kvöldinu var kastað fyrir róða
Í augum blika ljós reyklúsar í svefnglóða
Viss um að öldunum var skeytt fram til að rota
Þú veist jafn vel og ég að þetta er örþrota
Út. Út
Farðu.
Út. Út
Burtu
Svefndái stirna úr og fylgdarmeyjar mæri
Skýrleikin er sá einn að brátt þig burtu særi
|
||||
7. |
Skuggasörf
05:52
|
|||
Myrkrið flæðir mæðulaust um merkurnar,
Mjóstrætin og kallar loks á knæpurnar
Inni fyrir skrafa skuggadansarar
Og skella sorgarskuldunum á kollurnar
Kyrfilega kneyfa þeir og knýja á hrund
Að feta með þeim feilsporin á grárri grund
Því ónáttúran nagar þá jafnt nótt sem dag
Og sinnuleysið svertir þeirra sálarhag
Eitthvað nýtt, eitthvað nýtt, ég þarf eitthvað nýtt
Fljóðin verða fegurri með tárunum
Þó tyrfið verði að telja þau með árunum
Ununin að lokum ill og innantóm
Og gullhamrarnir ganga greitt í falskan hljóm
Því hjörð flekkaðra sálnanna
Sem vaða spýju milli sprautunálanna
Umbreytir mér í einn af sér
Í höfuðlausann myrkraher
|
||||
8. |
Brennið þið vitar
04:00
|
|||
9. |
Þögn
08:56
|
|||
Tómahljóðið tælir mig
Treglega það teymir
Brotthvarfið það ærir mig
Öskrið engu eyrir
Skelfir sem og heillar mig
Svör standa til saka
Því ef að eitthvað bítur mig
Þá bít ég til baka
Þögn, þú veist ég þrái þig
Þyrnum stráða vegi
Fennir yfir fyrri slóð
frýs í köldu hjarta
engu yljar hjartablóð
ránfuglarnir narta
slögin verða styttri, stutt
ópin verða að eitri
rokið leysir andann upp
ösku burtu þeytir
|
Bárujárn Reykjavik, Iceland
Bárujárn was founded in 2008 after members met at a industrial showcase for corrugated iron and related supplies in Hafnir city on the wind barren south coast of Iceland. The music was to represent the black sands and waves that is the heart and life of the booming Icelandic surfer culture. After years of procrastination their debut album was released the 4th of july 2013. ... more
Streaming and Download help
If you like Bárujárn, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp